Sölu á Fram Foods ehf. lokið

Arion banki yfirtók Fram Foods ehf.
Arion banki yfirtók Fram Foods ehf. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fram Foods ehf. hefur selt dótturfélag sitt Fram Foods Ísland hf. Þar með er sölu á öllum rekstrareiningum Fram Foods ehf. lokið. Hópur fjárfesta, sem leiddur er af Berghóli ehf., stendur að baki kaupunum á Fram Foods Ísland hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

 Áður hafa rekstrarfélög Fram Foods ehf. í Síle, Finnlandi og Svíþjóð verið seld. Þannig markar salan á Fram Foods Ísland hf. lokaáfangann í sölu rekstrareininga Fram Foods ehf. Áður en Fram Foods var yfirtekið af Arion banka var félagið að auki með starfsemi í Frakklandi sem var síðar aðskilin frá Fram Foods ehf. Reksturinn í Frakklandi er í söluferli.

 Fram Foods ehf. er að fullu í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK