Þúsund hlýddu á Alexander Osterwalder

Um þúsund manns koma á fyrirlesturinn í Hörpunni.
Um þúsund manns koma á fyrirlesturinn í Hörpunni.

Hátt í þúsund manns lögðu leið sína í Hörpu í dag til að hlusta á Alexander Osterwalder, metsöluhöfund bókarinnar Business Model Generation.  Í fyrirlestri sínum sagði Osterwalder frá nýrri aðferð sinni,Business Model Canvas, sem vakið hefur mikla athygli um allan heim en aðferðin snýst um að þróa og móta viðskiptamódel innan fyrirtækja með einföldum hætti. 

Hafa stór fyrirtæki á borð við Ericsson og GE nýtt sér aðferðafræði Osterwalder með góðum árangri, að því er fram kemur í tilkynningu frá Arion banka. Þá hafa einnig mörg íslensk fyrirtæki, auk þátttakenda í nýsköpunarsmiðjunni Startup Reykjavík, nýtt sér aðferðina. 

Í máli sínu lagði hann ríka áherslu á að viðskiptahugmyndir þurfi stöðugt að vera í endurskoðun og að við slíka endurskoðun nýtist aðferðafræði. Business Model Canvasvel. Þannig þurfa fyrirtæki sem ætla sér að ná árangri til lengri tíma sífellt að leita leiða til að uppfæra og endurmeta viðskiptamódel sitt til að verða ekki undir í samkeppni. 

Alexander Osterwalder, metsöluhöfund bókarinnar Business Model Generation í Hörpunni.
Alexander Osterwalder, metsöluhöfund bókarinnar Business Model Generation í Hörpunni.
Gestirnir voru látnir vinna að viðskiptamódeli á staðnum.
Gestirnir voru látnir vinna að viðskiptamódeli á staðnum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK