Segir óvissu ríkja um lán sem Afl tók

Frá Siglufirði.
Frá Siglufirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Afl-sparisjóður hefur verið í umræðunni síðustu vikur eftir greinaskrif Róberts Guðfinnssonar, fjárfestis og fyrrverandi framkvæmdastjóra útgerðarinnar Þormóðs ramma, í Morgunblaðinu þar sem hann sagði það óviðunandi að Arion banki nýtti sér styrk sinn til að þvinga Afl-sparisjóð til sameiningar, á meðan ekki væri ljóst hve há erlend lán sjóðsins væru. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, svaraði í grein að sparisjóðurinn hefði komið laskaður út úr fjármálahruninu og Arion banki hefði þurft að fjármagna sjóðinn og fella skilyrt niður skuldir að fjárhæð 2,4 milljarðar króna.

Í kjölfar þessa hefur Afl-sparisjóður sent frá sér tilkynningu þar sem því er komið á framfæri að sjóðurinn uppfylli skilyrði um eigið fé og reksturinn hafi gengið ágætlega á síðasta ári. Tilkynninguna má í heild lesa hér að neðan.

„Afl - sparisjóður uppfyllir kröfur fjármálaeftirlits um eigið fé og rekstur hans gekk ágætlega á síðasta ári. Eigi að síður er mikil óvissa enn varðandi lögmæti erlendra lána, en stjórn telur að búið sé að leggja nægjanlega mikið í afskriftarreikning til að mæta líklegustu niðurstöðu.

Meiri óvissa ríkir hins vegar um lögmæti þeirra erlendu lána sem sjóðurinn tók og þar hefur sjóðurinn aflað álits lögmanna sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að telja megi meiri líkur en minni á að leiðrétta þurfi þau lán.

Hefur stjórn ákveðið að fela lögmönnum að gæta hagsmuna sjóðsins og verður stefna gegn lánardrottnum sjóðsins þingfest í lok mánaðarins. Stjórn telur einnig að sú eftirgjöf skulda sem sjóðurinn hefur fengið sé óafturkræf og er það í samræmi við niðurstöðu óháðs lögfræðiálits.

Gunnar Karl Guðmundsson, stjórnarformaður.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK