Landsbankinn hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til slitastjórnar gamla Landsbankans (LBI) að hann hafi áhuga á að greiða fyrirfram tugi milljarða króna inn á 290 milljarða erlend skuldabréf milli gamla og nýja Landsbankans.
Heimildir viðskiptablaðs Morgunblaðsins herma að ólíklegt sé að af slíku verði í ljósi þess að Seðlabankinn hyggst ekki veita LBI undanþágu frá höftum.