Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja markaðsrannsókn á íslenska eldsneytismarkaðnum. Markaðsrannsókn er nýtt form rannsóknar, sem felur í sér athugun á því hvort grípa þurfi til aðgerða gegn aðstæðum eða háttsemi sem koma í veg fyrir, takmarka eða hafa skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns.
Þetta kemur fram í frétt frá Samkeppniseftirlitinu.
Byggir rannsóknin á c-lið 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga, en ákvæðið heimilar Samkeppniseftirlitinu að grípa til ýmis konar aðgerða til að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum, þótt þær stafi ekki af brotum á samkeppnislögum. Rannsókn af þessu tagi er m.a. hagfræðileg greining á samkeppni á tilteknum markaði, eða hlutum hans, og er því gott tæki til að fá heildaryfirsýn yfir samkeppnislegar aðstæður á markaði. Um framkvæmd markaðsrannsókna Samkeppniseftirlitsins vísast til reglna um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins nr. 490/2013 og umræðuskjals um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2012.
Ákvörðun um markaðsrannsókn á eldsneytismarkaði er byggð á gögnum og upplýsingum sem aflað hefur verið í tengslum við fyrri athuganir, erindi og ábendingar. Þá átti Samkeppniseftirlitið fundi með aðilum á markaðnum síðasta haust í því skyni að afla nýjustu upplýsinga um samkeppnisaðstæður.
Samkeppniseftirlitið áætlar að íslensk heimili hafi keypt bensín og díselolíu fyrir um 42 milljarða króna á árinu 2011. Ef bensín- og díselverð, án skatta og annarra opinberra gjalda, á árunum 2005-2011 er miðað við vegið meðalverð í aðildarríkjum Evrópusambandsins kemur í ljós að verð á bensíni á Íslandi var um 20% hærra og verð díselolíu um 15% hærra. Verð bensíns og díselolíu er að jafnaði með því hæsta sem þekkist í samanburði við aðildarríki Evrópusambandsins. Smæð og landfræðileg einangrun kann að sjálfsögðu að hafa áhrif á eldsneytisverð hér á landi. Þeim mun mikilvægara er að samkeppni sé ekki raskað vegna samkeppnishamlandi aðstæðna á markaðnum eða háttsemi þeirra fyrirtækja sem starfa á honum, auk þess sem mikilvægt er að framleiðsluþættir viðkomandi markaðar séu nýttir á sem hagkvæmastan hátt.
Í tengslum við rannsóknina hefur Samkeppniseftirlitið gefið út rannsóknaráætlun sem felur í sér áform um tilhögun og afmörkun rannsóknarinnar. Kann hún að breytast eftir því sem rannsókninni vindur fram. Þær aðstæður eða háttsemi sem Samkeppniseftirlitið telur að geti komið veg fyrir, takmarkað eða haft skaðlegt áhrif á samkeppni á íslenska eldsneytismarkaðnum og rannsaka þurfi frekar eru m.a. eftirfarandi atriði:
Í samræmi við 5. gr. reglna um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins hefur stjórn Samkeppniseftirlitsins skipað ráðgjafahóp en hlutverk hans er að veita faglega ráðgjöf og aðstoð vegna rannsóknarinnar. Ráðgjafahópinn skipa:
Á fyrri hluta árs 2014 gerir Samkeppniseftirlitið ráð fyrir því að upplýsingaöflun og mati eftirlitsins á gögnum verði lokið og birt verði svokölluð frummatsskýrsla um mitt sama ár. Í henni verður m.a. tekin afstaða til þess hvort Samkeppniseftirlitið telji að taka þurfi íþyngjandi ákvörðun í kjölfar markaðsrannsóknarinnar.