Einhverjir ættu að geta brosað sínu breiðasta þessa dagana þar sem í nógu er að snúast í kring um heimsókn 2300 erlendra ráðstefnugesta sem staddir eru hér á landi í tengslum við árlegt þing Evrópusamtaka tannréttingasérfræðinga sem haldið er í Hörpu en mbl.is leit þar við í dag og ræddi við skipuleggjanda.
Búið er að skipuleggja mikla dagskrá í tengslum við þingið og fjölmargir makar ferðuðust til landsins í í tengslum við þingið en hlutfallið er óvenju hátt að þessu sinni og fólk virðist almennt spennt fyrir því að ferðast hingað til lands.