105 fyrirtæki gjaldþrota í maí

mbl.is

Í maímánuði voru nýskráð 189 einkahlutafélög, flest í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar var nýskráð 151 einkahlutafélag í maí í fyrra. Fyrstu 5 mánuði þessa árs var fjöldi nýskráninga 853, en það er 15,7% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 737 fyrirtæki voru skráð, segir í frétt frá Hagstofu Íslands.

Þá voru 105 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í maímánuði, flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 5 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 459, en það er tæplega 12% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 521 fyrirtæki var tekið til gjaldþrotaskipta.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK