Danska hlutafélagið Semler, sem á og rekur umboð fyrir Volkswagen bifreiðar í Danmörku (Volkswagen, Audi, Porsche, SEAT og Skoda) hefur keypt helmingshlut í Heklu hf. Eftir kaupin eru tveir hluthafar í félaginu.
Semler samsteypan með 50% hlut og félagið Riftún ehf sem er í eigu Friðberts Friðbertssonar, forstjóra Heklu hf sem einnig er með 50% hlut.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Friðbert Friðbertsson hafði milligöngu um kaup Semler á hlutnum, eftir að hann hafði eignast allt hlutafé í Heklu hf. Lögfræðistofan Landslög og Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka voru ráðgefandi í ferlinu og viðskiptunum sjálfum. Ný stjórn Heklu hf var kjörin á hluthafafundi félagsins og hana skipa; Kim Skovgaard Rasmussen sem jafnframt er stjórnarformaður. Meðstjórnendur eru Jóhannes Bjarni Björnsson, Jón Eiríksson og Jens Bjerrisgaard.
Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir í tilkynningunni að um sé að ræða stóran áfanga í sögu fyrirtækisins. „Við erum komin með afar reynslumikið og öflugt félag til liðs við okkur. HEKLA hefur verið söluhæsta bifreiðaumboðið á Íslandi síðustu ár og við finnum mikinn áhuga á okkar vörum. Þetta sáu dönsku félagar okkar og sjá spennandi markað hér á Íslandi. Það er ekki á hverjum degi sem erlend fjárfesting skilar sér til Íslands og við erum stolt af því að þetta hafi gengið í gegn.“
Kim Skovgaard Rasmussen, forstjóri Skandinavisk Motor Co. (sem er innflutningsaðili á bifreiðum fyrir Semler samsteypuna.) Hann er einnig nýkjörinn stjórnarformaður Heklu, segir að með kaupunum sé verið að fjárfesta í góðu fyrirtæki.
„Við þekkjum þennan markað mjög vel og höfum farið í samstarf af þessu tagi áður í öðrum löndum. Við höfum trú á íslenska markaðnum og Friðberti sem leiðtoga í öflugu teymi starfsmanna Heklu. Okkar markmið er að tryggja sterka stöðu Heklu á markaðnum. Við teljum allar forsendur vera til staðar, þannig að Hekla geti áfram verið leiðandi afl á íslenska bifreiðamarkaðnum,“ er haft eftir honum í tilkynningu.