Frosti Ólafsson, nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir Íslendinga, hvort sem horft er til mennta- eða háskóla, útskrifast seint í alþjóðlegum samanburði.
„Ég er bjartsýnn á að stytting náms geti verið hagkvæmur kostur og með betri nýtingu fjármuna dregið úr brottfalli nemenda,“ segir Frosti í samtali í viðskiptablaði Morgunblaðsins sem út kom í morgun.