Kaupa hlut í CRI fyrir 600 milljónir

Verksmiðja CRI í Svartsengi
Verksmiðja CRI í Svartsengi Mynd/CRI

Kanadíska fyrirtækið Methanex er að fjárfesta í íslenska eldsneytisfyrirtækinu Carbon Reycling International (CRI) sen rekur verksmiðju sem  framleiðir endurnýjanlegt metanól úr útblæstri, vatni og raforku í Svartsengi.

Methanex leggur til nýtt hlutafé að verðmæti 5 milljónir Bandaríkjadala (600 milljónir íslenskra króna) og áformar jafnframt aukna fjárfestingu til að styðja áframhaldandi vöxt CRI. Methanex verður einn af stærstu hluthöfum CRI og tekur fulltrúi fyrirtækisins sæti í stjórn CRI.

CRI framleiðir og selur endurnýjanlegt metanól á Íslandi og víðar í Evrópu, undir vörumerkinu  Vulcanol.  

Vulcanoli er blandað í bensín eða notað við framleiðslu á öðru eldsneyti, þar á meðal lífdísil. Verksmiðja CRI hefur verið vottuð af stofnuninni International Sustainability and Carbon Certifcation system (ISCC) og telst Vulcanol endurnýjanlegt og sjálfbært eldsneyti sem skilar lágmarks sótspori við framleiðslu og notkun, án áhrifa á lífríki og umhverfim, samkvæmt fréttatilkynningu.

Methanex og CRI hyggja á nánara samstarf um að reisa stærri eldsneytisverksmiðjur hér á landi með tækni CRI, sem nýta munu innlenda raforku og endurvinna koltvísýring.

„„Við erum mjög stolt af því að fjárfesta í CRI, sem er leiðandi á sviði framleiðslu endurnýjanlegs metanóls og að geta gert fyrirtækinu kleyft að vaxa enn hraðar,” sagði John Floren, forstjóri Methanex í tilkynningu.

„Örasti vöxtur í spurn eftir metanóli á heimsmarkaði er til eldsneytisnota.  Við teljum að endurnýjanlegt metanól muni knýja frekari vöxt á þeim markaði. CRI teymið hefur þegar þróað nýja tækni, starfrækir verksmiðju og markaðssetur metanól með góðum árangri. Þessi árangur undirstrikar verðmæti þessarar fjárfestingar,” segir Floren enn fremur.

„Það er okkur mikil ánægja að fá Methanex í hóp hluthafa, með sæti í stjórn CRI. Methanex er leiðandi afl í þessum iðnaði, hvort heldur horft er til framleiðslu, sölu eða markaðsstarfs. Nú hyggjum við á aukna markaðssókn fyrir metanól sem eldsneyti og því er mikill styrkur af samstarfinu við Methanex,” sagði K-C Tran, forstjóri CRI. ”

„Við höfum einstaka reynslu af því að byggja og reka fyrstu verksmiðju sem nýtir útblástur gróðurhúsalofttegunda til framleiðslu á fljótandi eldsneyti. Þar sem spurn á heimsmarkaði fer vaxandi eftir eldsneyti sem leiðir til umtalsverðs samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda, er CRI í ákjósanlegri stöðu til að leggja grunn að aukinni framleiðslugetu á Íslandi. Með þessari fjárfestingu hefur Methanex sýnt fram á verðmæti þeirrar þekkingar sem við höfum aflað og gerir þessi stuðningur okkur kleyft að hraða vexti fyrirtækisins.”

 Methanex er skráð kanadískt almenningshlutafélag með höfuðstöðvar í Vancouver og er stærsti seljandi metanóls í heiminum.  

Frá blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um kaupin í CRI
Frá blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um kaupin í CRI mbl.is/Eggert Jóhannesson
Blaðamannafundur CRI og Methanex
Blaðamannafundur CRI og Methanex mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK