Seðlabanki Ástralíu hefur lækkað stýrivexti bankans í 2,5% og hafa þeir aldrei verið lægri frá því bankinn var stofnaður árið 1959. Voru vextirnir lækkaðir um 0,25%. Þingkosningar fara fram í landinu í byrjun september.
Seðlabankastjórinn segir að með þessu sé verið að reyna að draga úr verðbólgu og svara samdrætti í smásölu.
„Ástralska hagkerfið eru vaxið aðeins hægar en víða annars staðar á síðasta ári. Þetta gæti haldið áfram vegna samdráttar í fjárfestingum í námuvinnslu,“ sagði seðlabankastjórinn.