Í síðustu viku fór fram bjórkeppnin European Beer Star, en meðal þátttakanda að þessu sinni var Ölgerðin sem skráði sig til leiks með Bríó bjórinn í flokknum „þýskur pilsner.“ Flöskurnar voru aftur á móti stöðvaðar af tollyfirvöldum í Leipzig þar sem þeim var haldið í rúmlega viku tíma með þeim afleiðingum að Bríó náði ekki til þátttöku í keppninni.
Slík mál geta alltaf komið upp, en málið verður áhugaverðara þegar horft er til þess að Bríó vann í fyrra sama flokk í keppninni World Beer Cup. Var þar talað um hnignun pilsnerbjórgerðar í Þýskalandi og lauk heimildarþætti ZDF stöðvarinnar um stöðu bjórmála í Þýskalandi á orðunum „Hvað þá? Ísland!“ (þ. Island Bitte!), þegar tilkynnt var um sigurvegarann.
Umræddan þátt má sjá hér að neðan, en viðbrögð þularins má sjá í lok hans.