Landsframleiðsla á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 jókst um 2,2% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 1%.
Einkaneysla eykst en fjárfesting dregst saman
Einkaneysla jókst um 1,2% og samneysla um 1,1%. Fjárfesting dróst hins vegar saman um 13%. Útflutningur jókst um 1,1% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 4,6%.
Landsframleiðsla á 2. ársfjórðungi 2013, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 4,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 6,5% frá 1. ársfjórðungi 2013, segir á vef Hagstofu Íslands.