HB Grandi pantar tvö ný skip

HB Grandi Norðurgarður
HB Grandi Norðurgarður Af vef HB Granda

HB Grandi hefur samið um smíði tveggja skipa til veiða á uppsjávarfiski með fyrirvara um ábyrgðir af beggja hálfu. Skipin verða afhent 2015. Það fyrra í ársbyrjun en það seinna um haustið.

Fyrra skipið mun leysa af hólmi tvö 53 ára gömul skip, Víking og Lundey. Ákvörðun um frekari rekstur Faxa og Ingunnar verður tekin þegar nær dregur seinni afhendingunni. Með nýjum skipum næst betri meðferð afla. Til dæmis verður dælt úr poka frá skut, segir á vef HB Granda.

Samið var við skipasmíðastöðina Celiktrans Denis Insaat í Tuzla, Tyrklandi. Skipin eru 80 metra löng og 17 metra breið. Þau eru eru búin öflugri kæligetu eða 2 x 1.300.000 kcal/klst. fyrir 12 kælilestar sem eru alls 2.900 rúmmetrar. Aðalvélin er 4.600 kw. Samningsverðið er 44,5 milljónir evra eða um 7,2 milljarðar króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK