Erlendum aðilum áskotnuðust rúmlega 20 milljarðar í vexti í fyrra og á fyrri helmingi ársins í ár en á sama tíma fóru þeir einungis með tæplega tvo þriðju af upphæðinni út á gjaldeyrismarkað. Þannig virðist vera að þeim liggi ekki mikið á að komast út úr landinu með vextina og leita því aftur með upphæðirnar í innlenda ávöxtun. Þetta segir greiningardeild Arion banka.
Samkvæmt útreikningum deildarinnar fengu erlendir aðilar um 21,5 milljarða í vaxtagreiðslur og verðbætur af ríkisbréfum, ríkisvíxlum og íbúðabréfum á árinu 2012 og fyrri helmingi núlíðandi árs. Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá Seðlabanka Íslands fóru erlendir aðilar með tæpa 8 milljarða á gjaldeyrismarkað á árinu 2012. Þá fóru erlendir aðilar með um 5,7 milljarða úr landinu á fyrri hluta ársins í ár. Samtals fóru þeir með tæplega 14 milljarða á gjaldeyrismarkað af þeim 21,5 milljarða vöxtum sem féllu þeim í skaut og því nokkuð ljóst að erlendum aðilum hefur ekki legið mikið á að komast úr landinu, segir greiningardeildin.
Þá vekur athygli við skoðun á krónueign erlendra aðila að þrátt fyrir að heildarstaðan hafi minnkað um 83 milljarða frá ársbyrjun 2012 hefur staða þeirra í ríkisbréfum þvert á móti aukist um 2 milljarða. Samdrátturinn stafar því af lækkun í innstæðum (-34 milljarðar) og íbúðabréfum (-51 milljarður).