Íslandsbanki klárar endurfjármögnun N1

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1.
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1.

Íslandsbanki og N1 hafa lokið endurfjármögnun á lánum félagsins, en N1  er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. Íslandsbanki veitir félaginu langtímalán ásamt sveigjanlegri skammtímafjármögnun, sem er aðlöguð að rekstri félagins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, en velta N1 á árinu 2012 nam rúmlega 60 milljörðum. Eignir félagsins námu tæplega 28 milljörðum króna og eigið fé nam 14,6 milljörðum króna skv. árshlutauppgjöri 30.júní 2013.

N1 gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu um mitt ár 2011. N1 ákvað nýlega að fara í útboð með öll bankaviðskipti sín og þar með undirbúa félagið betur fyrir væntanlega skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Í kjölfarið valdi félagið  að ganga til samninga við Íslandsbanka sem lauk með undirritun samninga nýverið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK