Í kjölfar þess að gefið var út að Alvogen hygðist reisa rúmlega 11 þúsund fermetra byggingu fyrir lyfjaþróun hér á landi hefur stórt alþjóðlegt fyrirtæki í lyfja- og heilbrigðisgeiranum spurst fyrir um aðstæður hér og hvað sé í boði fyrir stórt tæknifyrirtæki sem skoðar að reisa starfsstöðvar hér á landi. Þetta herma heimildir mbl.is, en meðal annars var Alvogen veittur frestur til þriggja ára á greiðslu gatnagerðargjöldum í Reykjavík.
Enn er aðeins um óformlegar fyrirspurnir að ræða, en meðal þess sem heillaði fyrirtækið var að um þriðjungur rannsóknastyrkja hér á landi fer í rannsóknir á heilbrigðissviði og um helmingur af ritrýndum greinum er á sama sviði. Þá hafi mörg fyrirtæki, eins og Actavis og Össur stækkað hratt hér og fleiri séu í miklum uppbyggingarfasa, meðal annars Nox Medical og ORF Genetics.
Alvogen gaf út þegar uppbyggingin var kynnt að Ísland væri ákjósanlegur staður fyrir slíka uppbyggingu.