Verðlaunað fyrir framúrskarandi framtak

Jón Björgvin Guðnason, formaður sjóðsstjórnar, Ragnar Jóhannsson f.h. Sæbýlis, Sigurður …
Jón Björgvin Guðnason, formaður sjóðsstjórnar, Ragnar Jóhannsson f.h. Sæbýlis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Fengs, Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurnesja og Björn Bjarndal Jónsson, umdæmisstjóri Rótarý. Ljósmynd/Guðni Gíslason

Tvö sunnlensk fyrirtæki og ein skólastofnun hlutu í gær viðurkenningu og fjárstyrk frá verðlauna- og styrktarsjóði Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi. Viðurkenningarnar voru afhentar á lokahófi umdæmisþings Rótarý á Íslandi en þingið fór fram á Selfossi um helgina.

Samtals var 1,1 milljón króna ráðstafað til þessara viðurkenninga og en hæsta styrkinn hlaut Fjölbrautarskóli Suðurlands, 500 þúsund krónur, „fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði mennta- og samfélagsverkefna – fyrir menntun vistmanna á Litla Hrauni og Sogni - sem skilar þeim sem betri borgurum til samfélagsins.“

Ennfremur fékk Sæbýli ehf. á Eyrarbakka viðurkenningu „fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði vísinda og atvinnumála. Sæbýli er að hefja framleiðslu á sæeyrum og sæbjúgum til útflutnings og nýtir til þess íslenskt hugvit, heitt vatn og hreinan sjó.“ Fjárstyrkur upp á 300 þúsund krónur fylgdi.

Þá fékk Fengur ehf. í Hveragerði viðurkenningu og að sama skapi 300 þúsund krónur í styrk „fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði atvinnumála en auk annarra verkefna endurvinnur Fengur spón fyrir íslenskan landbúnað og nýtir til þess íslenskt hugvit, timburúrgang og vistvæna orku.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK