Rústir sem minna á fortíð Detroit sem stórkostlegrar iðnaðarborgar eru sífellt að verða vinsælli viðkomu staður ferðamanna.
Yfirvöld í borginni sem nú glíma við gríðarlegan fjárhagsvanda, virðast þó ekki hafa áhuga á því að láta rústirnar standa - heldur reyna að blása í þær nýju lífi. Ekki eru allir á eitt sáttir - sérstaklega ekki þeir sem vilja halda á lofti minningu hinnar miklu iðnaðarborgar.