Farsímafyrirtækið Alterna hóf í dag að bjóða upp á ótakmarkaðar mínútur og smáskilaboð óháð kerfi. Það þýðir að notendur greiða tæpar fimm þúsund krónur í mánaðagjald en greiða ekkert sérstaklega fyrir símtöl eða smáskilaboð.
Í tilkynningu Alterna segir Magnús Árni Gunnarsson, markaðsstjóri Alterna að þetta muni skila sér í lægri farsímagjöldum.