Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,9% í september frá ágúst 2013. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,6% (vísitöluáhrif 0,6%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju hækkaði um 3,3% (1,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,5% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 7,4% (1,2%).
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,7% (0,6%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um
3,0% (2,3%).
Miðað við september 2012 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,9% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 5,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 2,6% en matvælaverð hefur hækkað um 2,2%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.