Sala á nýjum fólksbílum hefur dregist saman um 4,5% það sem af er ári samanborið við sama tímabil í fyrra, þvert á væntingar forsvarsmanna stærstu bílaumboðanna.
„Ég var bjartsýnn fyrir ekki svo löngu þegar ég vissi að það kæmi ný ríkisstjórn til valda,“ segir Geir Gunnarsson, forstjóri Bernhard. „En því miður eru ekki jákvæð merki neins staðar,“ bætir hann við í fréttaskýringu um bílasöluna í viðskitpablaði Morgunblaðsins í dag.