Breytt úr evru í Bandaríkjadal

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar,
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, mbl.is/Kristinn

Landsvirkjun undirritaði nýlega tvo samninga um skilmálabreytingar á útistandandi skuldabréfum. Annars vegar var skuldabréfi skuldbreytt úr evrum í Bandaríkjadal og hins vegar var innköllunarákvæði tekið úr samningi og lokagjalddaga breytt.

Fyrri breytingin snýr að skuldbreytingu á skuldabréfi úr evrum yfir í Bandaríkjadal. Skuldabréfið var gefið út árið 2006 með gjalddaga 2016. Skuldabréfið var að fjárhæð 50 milljónir evra en eftir skuldbreytinguna verður það að fjárhæð um 68 milljónir Bandaríkjadala.

Sú síðari snýst um breytingu á innköllunarákvæðum á einu skuldabréfi Landsvirkjunar. Skuldabréfið er að fjárhæð 50 milljónir evra með árlegu innköllunarákvæði, af hálfu lánveitanda, fram að gjalddaga bréfsins árið 2023.

Ekki lengur skammtímaskuld heldur langtímaskuld

Samið var um að eigandi skuldabréfsins myndi afsala sér réttinum að innkalla skuldabréfið og lokagjalddagi skuldabréfsins verði í mars 2020. Sökum innköllunarákvæðisins hefur fyrirtækið skilgreint skuldabréfið sem skammtímalán en eftir breytinguna verður það fært meðal langtímaskulda, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Ávinningur Landsvirkjunar af þessum skilmálabreytingunum er tvíþættur. Annars vegar er dregið úr fjárhagslegri áhættu fyrirtækisins vegna mögulegra breytinga á gengi evru gagnvart starfsrækslugjaldmynt félagsins sem er Bandaríkjadalur. Hins vegar er dregið úr endurfjármögnunaráhættu með því að fastsetja lokagjalddaga á árinu 2020. Breytingar þessar eru mikilvægur þáttur í þeirri stefnu að draga úr áhættu tengdri lánasafni fyrirtækisins,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK