Vísitalan hækkar um 0,53%

mbl.is/Sigurður Bogi

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember hækkaði um 0,53% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,33% frá nóvember. Verðbólgan, mæld á tólf mánaða tímabili, er áfram 4,2%.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,6% á milli mánaða (áhrif á vísitöluna 0,22%) og liðurinn ferðir og flutningar hækkaði um 1,1% (0,18%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 3,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðbólgu á ári (1,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2013 var 412,7 stig, 3,9% hærri en meðalvísitalan 2012. Samsvarandi breyting var 5,2% árið 2012 og 4,0% árið 2011.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2013 var 392,3 stig, 3,8% hærri en meðalvísitalan 2012. Samsvarandi breyting var 5,3% árið 2012 og 3,8% árið 2011, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK