Bílaumboðið BL býður allt að 40% bílalán án vaxta og kostnaðar í 36 mánuði til kaupa á nýjum bílum.
Erna Gísladóttir, forstjóri fyrirtækisins, segir í samtali við Morgunblaðið að lánin séu seld áfram enda hafi BL ekki leyfi til að sinna lánastarfsemi.
Í samtalinu vill hún ekki fara nánar í hvort selja þurfi lánin með miklum afslætti þar sem þau bera ekki vexti eða hver áhrifin verða á framlegð af bílasölu. En lætur þess getið að BL hafi ekki hækkað verð á bílum til að vega upp á móti góðum lánakjörum.