David Levine, forstjóri Avant-Guide Institute, segir að atvikið í Smáralind á sunnudag þegar þúsundir ungmenna þyrptust í verslunarmiðstöðina ætti að vekja markaðs- og viðskiptafólk til umhugsunar. Þetta segir hann eftir að hafa talað við marga fullorðna sem virtust lítið skilja í uppákomunni.
Levine kemur fram á Ímark spánni 2014-2015 og heldur fyrirlestur um hver séu nýjustu „trendin“ í þörfum og væntingum neytenda og hvernig fyrirtæki geti lifað af og þróast í viðskiptaumhverfi nútímans.
Hann er talinn einn þekktasti sérfræðingur heimsins í að greina stefnu markaðarins og mörg af þekktari fyrirtækjum heims leita til hans þegar þau vilja átta sig á hvað er handan við hornið, t.d. MasterCard, Deutsche Telekom og Samsonite.
mbl.is ræddi við hann um muninn á „trendi“ og tímabundinni tískubylgju og atburðinn í Smáralindinni um daginn.