Aðeins 0,196% af 7,7 milljörðum fást upp í kröfur í búið Hreiðar Már Sigurðsson ehf., félag Hreiðars Más, fyrrverandi forstjóra Kaupþing banka. Nema heimtur því um 15 milljónum. Þetta kemur fram í frumvarpi til úthlutunar úr búinu sem verður kynnt á skiptafundi eftir tvær vikur. Hreiðar Már var eigandi félagsins en stærsti kröfuhafi er Arion banki auk lítillar kröfu frá Tollstjóra. Félagið var stofnað kringum hlutabréfakaup Hreiðars í Kaupþingi, en við fall bankans urðu þau verðlaus. Í apríl 2011 var félagið lýst gjaldþrota af héraðsdómi.
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í desember 2009 tapaði Hreiðar Már Sigurðsson ehf. 7,9 milljörðum árið 2008, en heildarskuldir þess voru 7,3 milljarðar á þeim tíma. Félagið hélt utan um eignarhluta Hreiðar í Kaupþingi, en hann hafði fært alla hlutabréfaeign sína yfir í félagið árið 2006.
Sérstakur saksóknari ákærði Hreiðar og fleiri lykilstjórnendur Kaupþings í fyrra fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik. Hreiðar Már Sigurðsson ehf. er þar til skoðunar, en Hreiðar setti hlutabréf sem hann fékk vegna kauprétta beint inn í félagið. Fjármagnaði bankinn kaupin að fullu og var hagnaður Hreiðars af þeim viðskiptum tæplega 325 milljónir. Ákært var í því máli í mars á síðasta ári, en fyrirtaka verður næstkomandi þriðjudag.