6,5 milljarða hagnaður Icelandair Group

Hagnaður Icelandair Group jókst um 27% milli ára.
Hagnaður Icelandair Group jókst um 27% milli ára.

Hagnaður Icelandair Group nam 56,4 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 6,5 milljarða króna, í fyrra og jókst um 27% milli ára.

Félagið birti í dag uppgjör sitt fyrir seinasta ár, 2013.

Þar kemur fram að hagnaður ársins fyrir skatta hafi numið 71 milljón Bandaríkjadala, sem jafngildir 8,2 milljörðum króna, og jókst um 24% frá árinu 2012. Tekjuaukning félagsins á milli ára var 13,8%.

EBITDA, rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, nam 6,8 milljónum Bandaríkjadala á fjórða ársfjórðungi 2013 og jókst um 0,9 milljón dala milli ára.

2,15 milljarðar í arð

Í tilkynningu frá félaginu segir jafnframt að eiginfjárhlutfall þess í árslok 2013 hafi verið 42%, samanborið við 39% í árslok 2012. Þá lækkuðu nettó vaxtaberandi skuldir um 95,6 milljónir Bandaríkjadala á árinu og eru nú neikvæðar að fjárhæð 77,5 milljónum dala.

Stjórn Icelandair Group leggur til að arður að fjárhæð 2,15 milljarðar króna verði greiddur til hluthafa á þessu ári. Það samsvarar 0,43 krónum á hvern hlut.

Afkoman framar vonum

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri félagsins, segir að afkoma ársins 2013 hafi verið góð og mun betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir í upphafi árs. Arðbær innri vöxtur hafi einkennt árið líkt og undanfarin ár, sem sé í samræmi við stefnu félagsins.

„Í millilandaflugi var framboð aukið um 16% frá fyrra ári og fjöldi farþega jókst um 12%. Stærsti markaður félagsins í millilandaflugi er alþjóðlegi markaðurinn á milli Evrópu og Norður-Ameríku og hefur hann verið helsti drifkrafturinn í vexti undanfarinna ára. Mikil aukning hefur einnig verið á ferðamannamarkaðinum til Íslands og eftirspurn eftir innlendri ferðaþjónustu hefur vaxið hratt. Samhliða þeim vexti hafa skapast tækifæri fyrir fyrirtæki innan Icelandair Group til arðbærs vaxtar,“ segir Björgólfur í tilkynningu.

Krefjandi verkefni framundan

Hann segir að ör vöxtur undanfarinna ára hafi tekið á innviði fyrirtækisins, sem séu sterkari í dag en nokkru sinni fyrr. Góður árangur ársins grundvallist meðal annars á hagfelldum ytri aðstæðum, aukningu í ferðaþjónustu á Íslandi og síðast en ekki síst öflugri liðsheild starfsmanna félagsins.

„Það er alltaf ánægjulegt þegar vel gengur, en kapp er best með forsjá. Framundan eru ýmis krefjandi verkefni. Má þar helst nefna aukna samkeppni auk þess sem samningar við nokkrar starfstéttir félagsins eru lausir sem skapar nokkra óvissu. Eftir stendur hins vegar að viðskiptalíkan fyrirtækisins hefur sannað sig, efnahagur er traustur og sjóðsstaða er sterk,“ segir hann.

Icelandair Group sé því vel í stakk búið til að takast á við framtíðina.

Áætlanir félagsins fyrir árið 2014 gera ráð fyrir að EBITDA muni nema 145 til150 milljónum Bandaríkjadala.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK