Útlit er fyrir að tap af rekstri Ríkisútvarpsins (RÚV) á yfirstandandi rekstrarári verði umtalsvert meira en áætlanir stjórnenda félagsins gerðu ráð fyrir, jafnvel þótt að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnar RÚV til Kauphallarinnar.
Niðurstaða uppfærðrar rekstraráætlunar, sem kynnt var á stjórnarfundi í dag, er stjórn RÚV mikil vonbrigði og hefur hún óskað eftir því að fram fari óháð úttekt á fjármálum þess. Stjórnin hefur jafnframt óskað eftir því við nýráðinn útvarpsstjóra, Magnús Geir Þórðarson, að hann fari yfir rekstraráætlanir með það að markmiði að reksturinn komist í jafnvægi sem fyrst.
Telur stjórnin raunhæft að það muni takast og að framtíðarhorfur kalli ekki á nýjar niðurskurðaraðgerðir til viðbótar við þær sem þegar hefur verið ráðist í á rekstrarárinu, að því er segir í tilkynningunni.
Þar segir að nú sé gert ráð fyrir að tap af rekstri félagsins verði 305 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins og 357 milljónir króna á rekstrarárinu öllu.
„Ljóst er að frávikið frá þeim áætlunum sem áður höfðu verið lagðar fram er umtalsvert og útlit er fyrir að tapið af rekstrinum muni hafa veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins, en það var við lok síðasta rekstrarárs 653 milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.
Því sé ljóst að hlutfall eiginfjár Ríkisútvarpsins fari undir 8% mörkin sem skilgreind eru í lánasamningum sem það hefur gert. Í tilkynningunni er þó tekið fram að RÚV hafi upplýst viðskiptabanka sinn um stöðuna og átt jákvæð samskipti um áframhaldandi samstarf.