Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili er 2,2% í mars en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,24% frá fyrra mánuði.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,23% frá febrúar og hefur hækkað um 0,8% síðustu tólf mánuði.
Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,9% (vísitöluáhrif 0,19%). Verð á bensíni og olíu lækkaði um 2,2% (-0,12%).
Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,8% verðbólgu á ári (0,0% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem tólf mánaða verðbólga er undir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands sem eru 2,5%.