Franski fjármálaráðherrann, Michel Sapin, ítrekaði í dag þá stefnu stjórnar François Hollande forseta, að gengi evrunnar væri of hátt og bitnaði það á hagvexti.
„Það verður að taka upp peningastefnu sem ýtir undir frekari hagvöxt í Evrópu,“ sagði Sapin í fyrirspurnartíma í franska þinginu í dag. „Ég vil gera orð bankastjóra Evrópubankans [Mario Draghi] að mínum og segi að of sterk evra bitnar á hagvexti í Evrópu og er slæm fyrir hagvöxt í Frakklandi,“ sagði Sapin.
Spurningu um hvort Frakkar hefðu farið fram á frekari frest frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) í Brussel til að koma böndum á fjármál sín svaraði hann neitandi. Að óbreyttu þykir stefna í að Frakkar uppfylli ekki skilyrði Brussel um lækkun skulda hins opinbera.
Sapin sagði í síðustu viku að Frakkar myndu ræða við yfirvöld í Brussel um nýjar tímasetningar til að koma fjárlagahallanum undir 3% af vergri landsframleiðslu en nú hafa þeir frest til næsta árs til að ná því marki.