„Það er engin lausn á skuldavanda að framlengja hann á hærri vöxtum, líkt og ætlunin er í nýja lánssamningnum. Það flýtir ekki fyrir afnámi hafta að gefa einum aðila sérmeðferð við að koma gjaldeyri úr landi.“
Þannig ritar Heiðar Guðjónsson hagfræðingur meðal annars í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag um lengingu lána Landsbankans.
Í greininni hvetur Heiðar Seðlabankann og fjármálaráðuneytið til að hafna samningnum.