Nýtt Icelandair hótel á Vík verður opnað á sunnudaginn, en opnunarhóf var haldið í dag. Hótelið er með 36 herbergjum sem hönnuð eru af Guðbjörgu Magnúsdóttur arkitekt, en innblástur var sóttur í nærumhverfi, hafið og fjöruna. Á hótelinu er veitingastaður og bar og er útsýni að fjörunni og Reynisdröngum meðal annars úr hótelherbergjunum.
Hótelstjórar eru hjónin Elías Guðmundsson og Vilborg Smáradóttir, en þau hafa einnig rekið Hótel Eddu Vík um árabil og tekið á móti ferðamönnum.