Magnús tekur stærsta stökkið í sögu Latabæjar

Magnús Scheving.
Magnús Scheving. mbl.is/Ozzo

Síðustu 20 ár hef­ur Magnús Scheving verið höf­und­ur og for­stjóri Lata­bæj­ar en nú er komið að því að íþrótta­álf­ur­inn fyrr­ver­andi taki stærsta stökkið í sögu bæj­ar­ins. Samn­ingi Magnús­ar er að ljúka og hef­ur hann ákveðið að end­ur­nýja hann ekki og því af­henda keflið yfir til eig­anda Lata­bæj­ar, alþjóðlegu fjöl­miðlasam­steyp­unn­ar Turner Broa­dcasting System. Þeir vilja þó ekki sleppa hon­um al­veg strax og Magnús mun því verða Turner áfram inn­an hand­ar sem ráðgjafi og sér­stak­ur sendi­herra Lata­bæj­ar næstu 2-3 árin hið minnsta. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu.

Frá því að Turner keypti fyr­ir­tækið árið 2011 hafa verið fram­leidd­ar tvær nýj­ar sjón­varpsþátt­araðir um Lata­bæ. Eft­ir fram­leiðslu á síðustu seríu var þeim merka áfanga náð að eiga yfir 100 þætti um lífið í Lata­bæ –  en það er það magn sem þarf til að svara eft­ir­spurn yngstu kyn­slóðar­inn­ar um ókomna tíð. Ekki verða því not leng­ur fyr­ir stúd­íóið góða hér á landi sem skilað hef­ur fyr­ir­tæk­inu þess­um mikla fjár­sjóði af sjón­varps­efni. Aðkoma Turner hef­ur skilað 5 millj­örðum í er­lend­um gjald­eyri inn í ís­lenskt efna­hags­líf og yfir 160 ár­s­verk hafa verið sköpuð ár­lega þessi þrjú ár.

Turner mun frum­sýna nýju sjón­varpsþátt­araðirn­ar á sjón­varps­stöðvum sín­um um all­an heim í haust. Sam­hliða ætla þeir sér að stór­auka fjár­fest­ingu í leik­sýn­ing­um og sækja af meiri krafti með Lata­bæ inn í net­heima. Verk­efnið verður leitt af skrif­stofu Turner í London þar sem haldið er utan um öll alþjóðleg vörumerki sam­steyp­unn­ar. Í tengsl­um við þessa breyt­ingu hverfa fimm fa­stráðnir starfs­menn Lata­bæj­ar á braut. Í októ­ber síðastliðnum lauk tök­um á seinni þáttaröðinni og hvarf þá meiri­hluti þeirra 160 verk­taka sem störfuðu við fram­leiðsluna til annarra verk­efna en 40 unnu við eft­ir­vinnsl­una og luku störf­um í apríl síðastliðnum. Ísland verður fyr­ir­tæk­inu áfram mik­il­vægt og stærsta verk­efni árs­ins hér á landi verður 20 ára af­mæl­is­sýn­ing Lata­bæj­ar í Þjóðleik­hús­inu en hátt í 70 manns munu starfa að upp­setn­ing­unni.

 „Eft­ir að ég fór úr bún­ingn­um þá hef­ur hlut­verk mitt sem sendi­herra fyr­ir heil­brigðan lífs­stíl víðs veg­ar um heim­inn auk­ist og eft­ir­spurn­in eft­ir mér sem fyr­ir­les­ara einnig og ég mun halda því áfram,“ er haft eft­ir Magnúsi Scheving í frétta­til­kynn­ingu. „Þá hef ég einnig hug á að snúa mér að spenn­andi verk­efn­um sem ég hef ekki kom­ist í vegna anna síðustu 20 árin.  Ég er stolt­ur og ánægður með að Lati­bær sé í hönd­um eins stærsta afþrey­inga­fyr­ir­tæki heims, Turner sem er hluti af Time Warner sam­steyp­unni. Aðila sem hef­ur allt sem þarf til að láta Lata­bæ vaxa og dafna um ókomna framtíð. Ég er jafn­framt virki­lega spennt­ur að sjá Lata­bæ í Þjóðleik­hús­inu og það er góð til­finn­ing að nýj­ar kyn­slóðir geti upp­lifað Lata­bæ á sviði al­veg eins og þegar æv­in­týrið hófst fyr­ir 20 árum síðan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK