Kostnaðarhlutföll íslensku bankanna eru há í alþjóðlegum samanburði, sem má meðal annars rekja til kostnaðar vegna endurútreikninga lána og endurskipulagningar útlána.
Virðisbreyting útlána hefur þó hækkað tekjurnar og þar með lækkað kostnaðarhlutföllin, segir í umfjöllun IFS Greiningar á íslensku bönkunum, þar sem rekstur þeirra er meðal annars borinn saman við nokkra norræna banka.
Lág arðsemi íslensku bankanna stafar annars vegar af gríðarlega háu eigin fé í alþjóðlegum samanburði og hins vegar af háum kostnaði tengdum afleiðingum fjármálakreppunnar, að þvíæ er fram kemur Í Morgunblaðinu í dag.