Verkföll kostuðu 400 milljónir

Bein áhrif af aðgerðum flugliða kostuðu Icelandair, 3,5 milljónir Bandaríkjadala, 399 milljónir króna. Icelandair hefur lækkað spá um rekstrarhagnað (EBITDA) ársins og er nú gert ráð fyrir að hann verði 138-143 milljónir Bandaríkjadala, 15,7-16,3 milljarðar króna, en fyrri spá hljóðaði upp á 145-150 milljónir dala, 16,5-17,1 milljarður króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar.

„Samkvæmt stefnu félagsins um fjárfestatengsl þá birtir félagið í upphafi hvers árs EBITDA spá og er hún uppfærð eða staðfest í tengslum við birtingu árshlutareikninga félagsins.  Samkvæmt viðmiðunarreglum félagsins um innherjaupplýsingar skal birta uppfærða spá  um leið og fyrir liggur að spáin hafi breyst um meira en 10%.  Þrátt fyrir að það eigi ekki við nú þá telur félagið, í ljósi aðstæðna, rétt að birta uppfærða EBITDA spá nú þegar rekstraruppgjör fyrir maí  liggur fyrir. Uppfærð afkomuspá tekur tillit til uppfærðra rekstrarforsendna og núverandi bókunarstöðu. 

Samkvæmt uppfærðri spá er gert ráð fyrir að EBITDA ársins verði um 138 – 143 milljónir USD, en spáin í upphafi árs var 145 – 150 milljónir USD.  Gert er ráð fyrir að gengi EUR gagnvart USD verði 1,35 það sem eftir ársins og að verð á flugvélaeldsneyti verði að meðaltali 1.000 USD per tonn.   Bein áhrif aðgerða flugstétta á rekstur félagsins eru áætluð um 3,5 milljónir USD.  Þá tekur spáin tillit til hærri launakostnaðar og lægri tekna en gert var ráð fyrir í upphaflegri spá, en tekjuspá félagsins lækkaði á milli mánaða sem má rekja til aðgerða flugstétta.  Í spánni er ekki gert ráð fyrir frekari kostnaði vegna vinnudeilna á árinu,“ segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK