Þegar þróun launa stjórnenda er skoðuð yfir lengra tímabil má sjá að þau hafa hækkað talsvert umfram laun almennt á vinnumarkaði. Í gær var haft eftir Þorsteini Víglundssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins að horfa þyrfti á heildarmyndina áður en umtalsverð hækkun stjórnenda á síðasta ári væri gagnrýnd.
Þorsteinn vitnaði til úttektar samtakanna frá árunum 2006 til 2013, en þar kom fram að almenn laun á vinnumarkaði hafa hækkað umfram laun stjórnenda. Þar er aftur á móti ekki horft til þess að laun stjórnenda hækkuðu talsvert umfram laun almennt á árunum þar á undan og lækkunin árið 2009 var í raun leiðrétting á fyrri hækkunum.
Gögn Hagstofunnar um flokkun launa eftir mismunandi starfstétt ná aftur til ársins 1998. Þegar þau eru skoðuð má sjá að á tímabilinu hafa laun stjórnenda hækkað um 229% meðan almenn laun hafa hækkað um 190%.
Mesta hækkunarskeiðið er frá 2004 til 2006, en frá 2004 til 2005 hækka laun almennt um 15% og stjórnenda um 24% og árið eftir er hækkunin almennt 11% og stjórnenda 17,3%. Fyrir þann tíma höfðu hækkanir verið mjög jafnar og aðeins munað rúmlega prósentustigi á þessum tveimur flokkum. Þannig hækkuðu laun almennt á árunum 1998 til 2004 um 56,25% meðan laun stjórnenda hækkuðu um 57,6%.
Með þeirri hækkun sem stjórnendur fengu umfram almennan markað á árunum þar á eftir voru stjórnendur komnir nokkuð fram úr öðrum, en hækkun þeirra frá 1998 til 2008 var 187% meðan laun almennt hækkuðu um 136%.
Frá 2008 til 2009 féllu laun aftur á móti talsvert og kom það verr niður á stjórnendum en almennt á markaði. Þannig lækkuðu stjórnendur um 17% meðan laun almennt fóru niður um 6,8%. Með þessari lækkun jafnaðist bilið aftur, en uppsöfnuð hækkun frá 1998 til 2009 var 120% fyrir markaðinn í heild, en 138% fyrir stjórnendur.
Eftir þetta hefur vegur stjórnenda heldur vænkast umfram almennar launahækkanir á markaði og er uppsafnað hlutfall frá 1998 nú komið í 229% fyrir stjórnendur meðan það er 190% almennt.
Um helgina birti Frjáls verslun samantekt yfir tekjur stjórnenda á íslenskum vinnumarkaði, en þar kom fram að laun æðstu stjórnenda 200 stærstu fyrirtækja landsins hafi hækkað um 13% milli ára.
Í ljósi þessarar niðurstöðu mætti Þorsteinn Víglundsson í Morgunútvarpið á Rás 2 og sagði að nauðsynlegt væri að horfa á heildarmyndina. Taldi hann að launaskrið stjórnenda í fyrra rökstyðji ekki neinar leiðréttingakröfur annarra hópa, sem Þorsteinn sagði réttilega að hefðu hækkað örlítið umfram stjórnendur. Aftur á móti er þá aðeins horft til tímabilsins 2005 til 2013 og mesta lækkunarár stjórnenda tekið með, en ekki mesta hækkunarárið.
Rétt er að taka fram að hér er ekki horft á breytingu í krónum talið, en stjórnendur eru alla jafna með hærri tekjur en almennt gerist. Prósentuhækkun hefur því almennt þau áhrif að laun stjórnenda hækka meira í krónum talið en fyrir þá sem hafa lægri tekjur.