Hlutabréf Icelandair Group hafa fallið um 3,6% í verði í 360 milljóna króna viðskiptum það sem af er degi. Gengi bréfanna stendur nú í 17,8 krónum á hlut en var 18,4 krónur á hlut við lokun viðskipta á föstudaginn.
Þá hefur gengi hlutabréfa Vodafone lækkað um tæp tvö prósent það sem af er degi. Veltan á bak við viðskiptin er þó ekki mikil, heldur um 56 milljónir króna. Félagið birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða næsta miðvikudag.