Útlit er fyrir að Frakkar muni ekki ná markmiðum Evrópusambandsins um halla á fjárlögum fyrr en árið 2017. Er þetta tveimur árum síðar en stefnt var að.
Fjármálaráðherra Frakklands, Michel Sapin, kynnti þetta i morgun en samkvæmt ESB á halli á fjárlögum aðildarríkja ekki að nema meira en 3% af vergri landsframleiðslu. Til stóð að markmiðið myndi nást á næsta ári en nú er ljóst að svo verður ekki. Sapin segir að hallinn á fjárlögum verði 4,3% á næsta ári en í ár 4,4%.
Að sögn Sapin verður hagvöxtur lítill í ár eða 0,4% en undanfarna tvo ársfjórðunga hefur enginn hagvöxtur mælst í Frakklandi.