Varar við hörðum árekstrum

Skerðingum sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er harðlega mótmælt í ályktun sambandsstjórnarfundar Samiðnar sem fram fór í dag. Þar kemur fram að þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnarinnar um mótvægisaðgerðir sem bæta eigi hag heimila sé ljóst að þær snerti heimilin með mismunandi hætti og komi síst tekjulægri heimilum til góða.

Sérstaklega er mótmælt hækkun lægra virðisaukaskattþrepsins úr 7% í 12% sem skili ríkissjóði 11 milljörðum króna og fjármagni þannig nánast allar breytingar á hærra þrepi virðisaukaskattsins og niðurfellingu á vörugjöldum. Ennfremur er meðal annars mótmælt skerðingu á rétti til atvinnuleysisbóta með styttingu bótatímabils og takmörkun á vinnumarkaðsúrræðum atvinnulausra.

Þá er því mótmælt að ekki sé tryggt fjármagn til þess að bregðast við auknum vanda í heilbrigðiskerfinu og þátttaka sjúklinga í lyfjakostnaði sé aukin, tekjutengingar barnabóta séu auknar og útgjöld til málaflokksins séu lægri en 2010, að húsnæðisstuðningur sé lækkaður að raungildi og viðmiðunarfjárhæðir vaxtabóta séu óbreyttar fimmta árið í röð þrátt fyrir að almennt verðlag hafi hækkað og kostnaður við húsnæði stóraukist.

Fram kemur að komi ofangreind atriði til framkvæmda sem og önnur sem nefnd eru í ályktuninni hafi „orðið mikil vatnaskil í samskiptum stjórnvalda og stéttarfélaganna sem mun leiða til harðari árekstra í tengslum við gerð kjarasamninga en þekkst hefur hér á landi síðustu áratugi.“ Minnt er á að við gerð síðustu kjarasamninga hafi verið tekið höndum sama um að koma á efnahagslegum stöðugleika sem hafi skilað betri árangri en vonast hafi verið eftir. Óbreytt fjárlagafrumvarp ógni þeim árangri.

„Sambandstjórnarfundur Samiðnar skorar því á ríkisstjórn Íslands að endurskoða framkomið fjárlagafrumvarp og taka upp skilvirkt samráð við stéttarfélögin og stuðla þannig að aukinni sátt í samfélaginu í stað þess að efna til ófriðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK