Verðbólga á evrusvæðinu var 0,3% í september samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í dag. Þetta er minnsta verðbólga sem mælst hefur á svæðinu í tæp fimm ár samkvæmt frétt AFP.
Fram kemur í fréttinni að Evrópski seðlabankinn kunni að þurfa að grípa til enn frekari aðgerða í kjölfar þessara talna til þess að reyna að koma í veg fyrir að verðhjöðnun verði á evrusvæðinu.
Ennfremur segir að lítil verðbólga sé orðin að helsta vandamáli svæðisins. Minnkandi eftirspurn sé innan þess og óttast að hægagangur í hagkerfum evruríkja kunni að leiða til nýrrar niðursveiflu.
Þá kemur fram að atvinnuleysi á evrusvæðinu hafi mælst 11,5% í ágúst sem sé óbreytt frá júlímánuði samhliða stöðnun á svæðinu og óvissu um áhrif refsiaðgerða gegn Rússlandi á efnahag evruríkja.