WOW vísaði í dag til erlendra lággjaldaflugfélaga varðandi þyngdar- eða stærðartakmarkanir á handfarangri.
„Mörg önnur erlend lággjaldaflugfélög eru með sama rekstrarmódel og hafa takmarkanir á handfarangri, ýmist stærðar eða þyngdar takmörk. Má þar nefna EasyJet, Ryanair, Wizz air, Spirit, Allegiant, AirAsia og fleiri lággjaldaflugfélög,“ segir í yfirlýsingu WOW í dag.
Ef litið er til þeirra flugfélaga sem nefnd voru af hálfu WOW má sjá að engin hámarksþyngd er á handfarangri hjá Easyjet þótt vissulega sé rukkað fyrir innritaðan farangur. Á heimasíðu fyrirtækisins virðast tveir kostir í boði; Annars vegar ertu tryggður fyrir því að handfarangurinn verði hjá þér í vélinni ef samanlögð hæð, lengd og breidd töskunnar er ekki meiri en 110 sentímetrar. Hins vegar má taskan vera 126 sentímetrar en þá gæti hún verið flutt niður í farangurshólf þér að kostnaðarlausu.
Þá vísaði WOW einnig til Ryanair en samkvæmt heimasíðu þeirra má handfarangurinn vera allt að tíu kíló án þess að greiða þurfi sérstaklega fyrir hann.
Samkvæmt úttekt Túrista tóku sjö þeirra flugfélaga sem flugu frá Keflavík í sumar sérstakt gjald fyrir innritaðan farangur. Ekkert þeirra takmarkaði hins vegar handfarangur við fimm kíló.
Rétt er að flugfélögin Wizz air og Spirit, sem nefnd voru af WOW, rukka sérstaklega fyrir handfarangur en samkvæmt Túrista hóf ungverska lágfargjaldfélagið Wizz að rukka tíu evrur, eða um 1.500 krónur, fyrir handfarangur á síðasta ári. Fyrirmyndin er hið bandaríska flugfélag Spirit air, þar sem farþegar borga um 4.200 krónur fyrir allan handfarangur sem ekki kemst undir sætin. Þingmenn á Evrópuþinginu reyndu að fá sambandið til að banna þess háttar gjaldtöku og að réttur farþega til þess að taka með sér handfarangur án sérstakrar gjaldtöku yrði þannig tryggður. Tillagan var hins vegar ekki samþykkt.
Líkt og komið hefur fram í dag hóf flugfélagið WOW um mánaðamótin að rukka sérstaklega fyrir handfarangur, sé hann þyngri en fimm kíló. Gjaldið er 1.999 krónur ef flugtíminn er skemmri en fjórir tímar en annars er gjaldið 2.999 krónur. Þetta á þó einungis við ef handfarangurinn er bókaður á netinu, en þeir sem gera það ekki þurfa að greiða frá 3.999 krónum til 8.399 fyrir hvern fluglegg.
Frétt mbl.is: Eiga eftir að venjast töskugjaldi
Frétt mbl.is: Þyngdin skiptir máli