Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn varar við nýrri fjármálakreppu í stöðugleikaskýrslu sinni sem kynnt var í gær. Ástæðan er aðallega sú að stýrivextir hafa haldist lágir í langan tíma, og hvetur það til áhættusamra fjárfestinga á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Stýrivextir hafa nú haldist lágir víðast hvar í heiminum í um fimm ár. „Löggjafasamkomur í víðast hvar í heiminum standa frammi fyrir nýju ójafnvægi á mörkuðum. Ekki í gegnum áhættutöku til þess að stuðla að stöðugleika, heldur í gegnum áhættutöku annarra aðila,“ segir José Viñals, fjármálafulltrúi AGS og á þá við vogunarsjóði, peningamarkaðssjóði og fjárfestingabanka.
Segir Viñals að eftir að björgunum var bjargað í kjölfar hrunsins standi þeir tryggari fótum. Þeir séu hins vegar ekki nægilega sterkir til þess að standa fyrir jákvæðum viðsnúningi í hagkerfinu.
Í stöðugleikaskýrslunni kemur fram að lágir stýrivextir séu vel til þess fallnir að auka neyslu almennings og þannig koma hagkerfinu af stað. Aukaverkanir lágra stýrivaxta séu hins vegar óæskilegar áhættufjárfestingar.