Það var skammvinn sæla hjá verðbréfamiðlurum í Evrópu í morgun eftir að hlutabréfavísitölur hækkuðu í morgunsárið eftir lækkun í gær. Nú hefur þetta snúist við og hafa allar helstu vísitölur álfunnar lækkað um 2- 3% fyrir utan þá þýsku sem hefur lækkað um tæp 3%.
Í Amsterdam, París, Madríd, Lissabon og Mílanó nemur lækkunin yfir 3% en í Frankfurt er lækkunin rúm 2% og tæp 2% í London. Þetta er áttundi dagurinn í röð sem hlutabréf lækka á helstu mörkuðum álfunnar og er þetta lengsta lækkunartímabilið í meira en tíu ár eða allt frá árinu 2003, samkvæmt frétt Bloomberg.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur einnig lækkað tölvuvert og því eldsneytisverð á niðurleið um allan heim. Ísland er þar ekki undanskilið en lækkunin síðasta sólarhringinn nemur um þremur krónum á lítrann.
672 milljarðar dala þurrkuðust út
Samkvæmt Bloomberg þurrkuðust út 672 milljarðar Bandaríkjadala á hlutabréfamörkuðum heimsins í gær en verðlækkun einkenndi alla helstu hlutabréfamarkaði heimsins.
Bloomberg hefur eftir yfirmanni fjárfestinga hjá Saxo bankanum, Steen Jakobsen, að árum saman hafi viðskipti bankans byggst á peningastefnum ríkja, Nú snúist þetta um eitthvað miklu meira og raunverulegra. Markaðir séu nú í miðri hringiðu slæmra frétta.