Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sagði komandi kjarasamninga vera fílinn í herberginu við kynningu á vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans sem hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur. Áður höfðu vextirnir verið óbreyttir frá nóvember 2012.
„Verði launahækkanir í samræmi við verðbólgumarkmið gætu skapast forsendur fyrir frekari lækkun. Miklar launahækkanir gætu hins vegar grafið undan þessum nýfengna verðstöðugleika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný,“ sagði hann.
Már benti á að hækkanir mættu vel vera með svipuðu móti og í síðustu kjarasamningum en þá var samið um 2,8 prósent launahækkun. Þá varð honum rætt um einstaka hópa sem krefjast hlutfallslega hærri launahækkunar. Slíka hækkun sagði hann vel geta rúmast innan heildarmeðaltalsins en að slíkt þyrfti að vera með samþykki annarra og þá vegna sérstakra aðstæðna eða vegna þess að þeir hafi dregist aftur úr.
Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabankans, sagði þó að síðustu kjarasamningar teldust ansi ríflegir ef þeir væru settir í sögulegt samhengi og töluvert hærri en það sem sést hefur í nágrannalöndum okkar. Það þyrfti að hafa í huga við gerð næstu kjarasamninga.
Samkvæmt spá bankans, sem birtist í Peningamálum í dag, eru horfur á heldur minni hagvexti í ár en spáð var í ágúst. Áfram er gert ráð fyrir kröftugum vexti innlendrar eftirspurnar og þróttmiklum hagvexti á næstu þremur árum. Batinn á vinnumarkaði heldur einnig áfram, þótt nokkuð hafi dregið úr vexti vinnuaflseftirspurnar.
Í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins sem birt var í morgun er vaxtalækkuninni fagnað og jafnframt bent á að skilaboð Seðlabankans um skilyrði til að lækka vexti enn frekar séu þörf áminning til aðila vinnumarkaðarins.
Frétt mbl.is: Lækka stýrivexti um 0,25%