Sala hjá skyndibitakeðjunni McDonald's dróst enn meira saman í nóvember en spár höfðu gert ráð fyrir. Talið er að slakur árangur muni hafa áhrif á útkomu næsta ársfjórðungs en þetta er sjötti mánuðurinn í röð sem sala hefur dregist saman.
Sala fyrirtækisins á heimsvísu dróst saman um 2,2 prósent í nóvember en gert hafði verið ráð fyrir að salan gæti minnkað um 1,7 prósent.
Hlutabréf í McDonald's féllu um 3,5 prósent í verði í morgun í Kauphöllinni í New York. Forstjóri fyrirtækisins, Don Thompson, sem tók við fyrirtækinu í júlí 2012, hefur hrist nokkuð upp í hlutunum og veitt stjórnendum útibúa meira frjálsræði í rekstrinum og þannig reynt að bæta sölutölurnar. Þrátt fyrir þetta hefur sala ekki batnað á milli mánaða frá október 2013.
Þá hefur aukin áhersla verið lögð á ferskleika hráefna auk þess sem viðskiptavinum er frekar gefinn kostur á að setja máltíðina saman á sinn hátt, en það mun vera liður í að gera McDonald's samkeppnishæfari við aðra skyndibitastaði líkt og Subway og Chipotle.
Reuters greinir frá þessu.