Ástríður Þórðardóttir, fjármálastjóri Strætó, var ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins í kjölfar þess að Reyni Jónssyni lét af störfum í lok nóvember.
Starfið var auglýst og rann umsóknarfrestur út 15. desember að sögn Bryndísar Haraldsdóttur, stjórnarformanns Strætó.
Ástríður gegnir starfi framkvæmdastjóra samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri fyrirtækisins þar til nýr hefur verið ráðinn.