Róbert maður ársins

Róbert Guðfinnsson á forsíðu nýjasta tölublaðs Frjálsrar verslunar.
Róbert Guðfinnsson á forsíðu nýjasta tölublaðs Frjálsrar verslunar.

Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, er maður ársins í atvinnulífinu á Íslandi árið 2014 að mati Frjálsrar verslunar. Hann hefur fjárfest fyrir á fjórða milljarð í heimabyggð sinni Siglufirði í líftækni og ferðaþjónustu, að mestu fyrir eigið fé sem hann hefur flutt til landsins og er afrakstur af erlendri starfsemi hans í sjávarútvegi og fiskeldi.

Hann fær viðurkenninguna í veglegu hófi sem Frjáls verslun heldur honum til heiðurs í dag á Radisson Blu Hótel Sögu, að því er segir í tilkynningu.

Fram kemur að í mati sínu hafi dómnefndin lagt til grundvallar stórhug og framsæknar fjárfestingar hans í siglfirsku samfélagi sem tengjast fjárfestingarstefnu um sameiginleg verðmæti og samfélagslega ábyrgð til góðs fyrir íslenskt samfélag, þekkingu og menningu.

„Róbert fjárfestir bæði í innviðum siglfirsks samfélags samhliða einkafjárfestingum sínum – og styðja þær fjárfestingar vel hvor við aðra. Það er fjárfestingarstefna sem kennd hefur verið við sameiginleg verðmæti í stjórnun.

Markmið hans er að Siglufjörður verði með þá breidd í atvinnulífi, menntun, þekkingu og bæjarlífi sem geri kaupstaðinn eftirsóknarverðari fyrir aðra til að hefja þar starfsemi sem krefst þekkingar og menntunar – og dragi þannig til sín menntaða einstaklinga í auknum mæli.

Hann hefur fjárfest í líftækni; byggir nýja líftækniverksmiðju, auk þess sem hann hefur keypt gömlu SR-mjöls-verksmiðjurnar á Siglufirði undir þá starfsemi. Hann opnar nýtt hótel á komandi sumri við smábátahöfnina. Hann rekur þegar tvo veitingastaði við hafnarbakkann í gömlum húsum sem hann gerði upp af myndarskap. Þá hefur hann lagt fé í byggingu nýs golfvallar og skíðasvæði bæjarins. Auk þess að snyrta til í kringum smábátahöfnina og gera þar svæði, sem áður var moldarsvað, að blakvelli og minigolfvelli,“ segir í tilkynningunni.

Þetta er í 27. sinn sem Frjáls verslun útnefnir mann ársins í atvinnulífinu og eru þetta elstu viðskiptaverðlaun á Íslandi.

Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert í atvinnulífi á Íslandi og hvetja með þeim hætti til aukins framtaks í viðskiptum og athafnasemi á meðal landsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK