Áhyggjur af lifibrauði bakara

Á síðasta ári voru 1.800 tonn af brauði flutt inn …
Á síðasta ári voru 1.800 tonn af brauði flutt inn til landsins. Ásdís Ásgeirsdóttir

Samþjöppun hefur orðið á bakkelsismarkaðnum og hafa bakaríin færst á færri hendur. Þá hefur bökurum jafnframt fækkað og sífellt meira er flutt inn af brauði. Þetta er nákvæmlega sama þróun og á Norðurlöndunum að sögn framkvæmdastjóra Landssambands bakarameistara.

Fækkað um 13

Skráðum félagsmönnum í Landssambandinu hefur fækkað nokkuð á liðnum árum. Í desember 2014 voru þeir 29 talsins en í lok árs 2001 voru þeir 42. Þá voru þeir 39 í lok árs 2003. Fjöldi bakarísbúða innan félagsins hefur hins vegar verið nokkuð stöðugur í kringum sextíu og sýnir það að samþjöppun hefur orðið í greininni. „Þetta er nákvæmlega sama þróun og í nágrannalöndum okkar, bæði á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Fyrirtækjum fækkar en þau stækka og sama þróun á sér stað í öðrum greinum,“ segir Ragnheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra bakarameistara og bendir til dæmis á Kornið, sem hefur verið að kaupa upp minni bakarí og er nú orðið stærsta bakarí landsins og rekur 12 bakarí sem þjónusta yfir 200 fyrirtæki. Þá bendir hún á Lagkagehuset í Danmörku til samanburðar, sem sífellt fjölgar útibúum sínum. Brauðbarir eru þá einnig komnir í flesta stórmarkaði og innflutningur á brauði eykst með hverju ári en á síðasta ári voru um 1,800 tonn af brauði flutt inn til landsins.

Jafnvægi milli stórmarkaða og sérverslana

Hún telur þó ekki tilefni til að ætla að bakarí líkt og við þekkjum þau í dag muni leggjast af líkt og mjólkurbúðirnar forðum daga. „Ég held frekar að það muni nást einhvers konar jafnvægi milli stórra matvöruverslana, s.s. lágvöruverðsverslana, og sérverslana með meiri þjónustu og vörur af tilteknum gæðum og uppruna,“ segir Ragnheiður

Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bakarameistara, telur þá einnig að bakaríin muni halda velli í framtíðinni. Hann segist þó vissulega hafa áhyggjur af fækkun í stéttinni. „Þetta er okkar lifibrauð og auðvitað hefur maður alltaf áhyggjur af því. En ég lifi í voninni og tel að jafnvægi náist að lokum,“ segir hann. „Það munar alltaf ansi mikið þegar eina bakaríið hverfur úr byggðarlaginu,“ segir hann þó og bætir við að það hafi aðeins verið að gerast. „En ég hef ekki trú á því að bakaríin deyi út,“ segir Jón Albert.

Rósa Braga
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK