Ísland var valið sem erlendi áfangastaður ársins á stærstu ferðakaupstefnu Norður Evrópu, MATKA, sem fram fer í Finnlandi. Það voru samtök finnskra ferðablaðamanna (Finnish Guild of Travel Journalists), sem stóðu að valinu, en í þeim eru 60 helstu ferðablaðamenn Finnlands.
Þorleifur Þór Jónsson tók á móti verðlaununum fyrir hönd Íslandsstofu. Þorleifur segir á vef Íslandsstofu, að verðlaunin sýni hvað Ísland sé búið að koma sér vel á kortið í Norður Evrópu. „Það eru 14 ár síðan reglubundið flug hófst frá Helsinki til Íslands, fyrst eingöngu sem sumarflug, en núna er flogið allt árið og eru allt að ellefu brottfarir á viku yfir háönnina. Það er því mikil sókn á þessum markaði,“ segir Þorleifur, sem stóð vaktina á þjóðarbás Íslandsstofu þar sem átta ferðaþjónustufyrirtæki frá Íslandi taka þátt.
Að sögn Þorleifs er það sambland hrífandi menningar, fjölbreytilegra áfangastaða og skapandi ferðaþjónustu sem virðast hrífa einna mest ef marka má kaupstefnugestina. Þá hefur sú vinna sem aðilar ferðaþjónustunnar hafa lagt í síðustu árin einnig skilað sér vel en þannig hefur tekist að vekja eftirtekt og halda Íslandi ofarlega í hugum fólks með samstilltu átaki.